Að vera með kveikt á perunni er hugarástand. Hugarástandi sem stjórnast af atferli okkar. Það góða er að atferli okkar getum við breytt.
Þetta er einungis spurningin um að taka upp nýjar venjur. Venjur sem að maður lærir á lífsleiðinni. Einhvervegin er það þannig að þeir sem fást við bróta nýar leiðir, frumkvöðlar hafa þann hæfileika að vera með kveikt á perunni. Þetta hugarástand okkar að kveikja á perunni getum við kallað fram og í raun þjálfað upp með því að gefa gaum að venjum okkar og atferli. Það er alveg ótrúlegt hvað við erum vanaföst og fljót að festa okkur í venjum sem ekki endilega hjálpa okkur til þess að vera opin, frjó og skapandi í hugsun. En það er það sem ég kalla að vera með kveikt á perunni.
Í megin atriðum eru þetta 8 vanar sem við þurfum að gefa gaum. 8 vanar sem að flestum þeim sem telja sig vera frumkvöla finnast eðlilegar en eru ekki jafn sjálfsagðar hjá öllum.
Innan fyrirtækja fá einstaklingarnir oftast mikið frelsi til þess að hafa áhrif á starfsumhverfi sitt og starfsframa. Það er engin vafi að ef þér tekst að ná tökum á þessum 8 venjum og þú nálgast þær með opnum hug á þér eftir að líða mikið betur í vinnunni og starfsframi þinn á eftir að blómstra.
Byggt á bókinni „Switched on“ eftir Sahar Hashemi